Mikil reiði í hópi flugmanna

icelandair.
icelandair.

„Við erum með lög á bakinu og mjög ósáttir við það. Það er mikil reiði í okkar hóp og bendum á að enginn verði neyddur til að vinna yfirvinnu,“ segir Örnólfur Jónsson, formaður samninganefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Alþingi samþykkti fyrr í dag að setja lög á verkfall flugmanna.

Sam­kvæmt frum­varp­inu verða verk­fallsaðgerðir sem Fé­lag ís­lenskra at­vinnuflug­manna hóf gegn Icelanda­ir 9. maí óheim­il­ar, frá gild­is­töku lag­anna. Deiluaðilum verður heim­ilt að semja um kjara­mál, en óheim­ilt verður að knýja fram kjara­bæt­ur með vinnu­stöðvun.

Örnólfur segir að flugmenn séu reiðir því að ráðist sé á réttindi þeirra með þessum hætti. „Við teljum það mjög sérstakt ef lenskan í þjóðfélagin verður sú að stöðva löglega boðaðar vinnustöðvanir með lagasetningu. Þá er verið að færa alla kjarabaráttu hér á landi langt aftur í tímann.“

Hafi deiluaðilar ekki náð sam­komu­lagi þann 1. júní skal gerðardóm­ur grípa inn í og ákveða kaup og kjör flug­manna Icelanda­ir fyr­ir 1. júlí nk. Örnólfur segir að þetta sé eitthvað sem löggjafinn hafi sett inn til að fá á viðræðurnar lokapunkt. „En okkur gefst kostur til að semja áður en gerðardómur gengur þannig að það er ennþá tími ef vilji er fyrir hendi. En við höfum enga reynslu af gerðardómi og ekki þeir heldur, enda er þetta mjög sjaldgæft.“

Mikið hefur borið í milli samningsaðila og segir Örnólfur að þetta verði þá kannski til þess að setja þrýsting á menn þannig að þeir teygi sig lengra í viðræðunum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert