Barist gegn fordómum

Samkynhneigðir flögguðu í Pétursborg í Rússlandi í dag
Samkynhneigðir flögguðu í Pétursborg í Rússlandi í dag AFP

Samkynhneigð var tekin út af sjúkdómalista Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar þann 17. maí árið 1990.  Að því tilefni er 17. maí Alþjóðlegur baráttudagur gegn fordómum gagnvart hinsegin fólki.

Samtökin ‘78 boða til opins fundar í dag með frambjóðendum til borgarstjórnar og hvetja landsmenn til að draga regnbogann að húni.

Akraneskaupstaður flaggar því regnbogafánum í dag við skrifstofur sínar að Stillholti 16-18 og við aðra stofnanir kaupstaðarins.

Mannréttindastefna Akraneskaupstaðar var nýlega samþykkt í bæjarstjórn og þar kemur fram að Akraneskaupstaður styður réttindabaráttu hinsegin fólks. Orðið ,,hinsegin“ er regnhlífarhugtak sem nær yfir alla þá hópa sem skilgreina kynhneigð sína og kynvitund utan hins gagnkynhneigða ramma. 

Í stefnunni segir að óheimilt sé að mismuna fólki á grundvelli kynhneigðar eða kynvitundar og að framlag hvers og eins skuli metið að verðleikum óháð kynvitund eða kynhneigð.

AFP
AFP
AFP
AFP
A
A AFP
Akraneskaupstaður flaggar regnbogafánum í dag við skrifstofur sínar að Stillholti …
Akraneskaupstaður flaggar regnbogafánum í dag við skrifstofur sínar að Stillholti 16-18 og við aðra stofnanir kaupstaðarins.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert