Ekki heyrt bofs frá þingmönnum

Skjáskot úr myndbandinu
Skjáskot úr myndbandinu

„Við höfum fengið gríðarlega mikil viðbrögð við þessu,“ segir Gauti Jóhannesson sveitarstjóri Djúpavogshrepps um myndbandið sem sveit­ar­fé­lagið sýndi á veraldarvefnum í gær. Myndbandið var gert í samstarfi við Afl starfs­greina­fé­lag til þess að vekja fólk til um­hugs­un­ar um stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. „Ég hef fengið fjölda pósta og símhringinga í allan morgun og sama á við um oddvita sveitarstjórnar. Skilaboðin eru öll á einn veg en fólk er að lýsa yfir stuðningi við okkur og okkar málstað.“

Mikil umræða hefur verið undanfarið um Djúpavog og stöðu sveitafélagsins eftir að út­gerðafyr­ir­tækið Vís­ir ákvað að hætta starf­semi sinni á staðnum sem hefur miklar afleiðingar á samfélagið á Djúpavogi. Mynd­band­inu er beint að stjórnvöldum en samkvæmt Gauta hefur ekkert heyrst frá þeim eða öðrum þingmönnum í kjölfar birtingarinnar. „Nei, við höfum ekki heyrt bofs frá þingmönnum en við bíðum spennt.“

Í síðustu viku afhenti Kristján Ingimars­son, íbúi á Djúpa­vogi, Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­sæt­is­ráðherra, und­ir­skrift­ir 150 íbúa Djúpa­vogs þar sem stjórn­völd eru hvött til þess að treysta byggð í bæj­ar­fé­lag­inu. Á fundi þeirra að af­hend­ing­unni lok­inni sagðist Sig­mund­ur fylgj­ast vel með stöðunni og að hann muni heim­sækja bæj­ar­fé­lagið eft­ir að þingi lýk­ur.

Samkvæmt Gauta er ekki vitað hvenær er von á forsætisráðherra. „Hann sagðist ætla að koma eftir þinglok þannig að núna bíðum við bara.“

Að sögn Gauta er mikill hugur í íbúum Djúpavogs. „Það er algjör samstaða á meðal íbúanna um að við ætlum ekki að láta þetta fara neitt með okkur. Ég vona að það hafi komið fram í myndbandinu. Við ætlum að standa í lappirnar þar til annað er ekki hægt.“

Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi.
Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri á Djúpavogi. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert