Umfangsmikil aðgerð sem náði til Íslands

Ljósmynd/Tollstjóri

Þrjú mál komu upp hér á landi í alþjóðlegri aðgerð, sem er nýlokið, gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum sem seld eru á netinu. Embætti Tollstjóra og Lyfjastofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni, sem stóð í viku.

Aðgerðin „Pangea VII“ var á vegum WCO (World Customs Organisation) og kom Interpol að henni þar sem markmið hennar var meðal annars að uppræta glæpastarfsemi þá er liggur að baki sölu umræddra lyfja, segir í tilkynningu frá Tollstjóra.

Um er að ræða stærstu alþjóðlegu aðgerð gegn sölu ólöglegra lyfja, sem framkvæmd hefur verið til þessa. Nær 200 stofnanir í 111 löndum tóku þátt í henni og voru 237 handteknir í fjölmörgum löndum. Meðal þeirra 9,4 milljóna sendinga af fölsuðum og ólöglegum lyfjum, sem haldlögð voru í aðgerðinni, voru megrunarlyf, krabbameinslyf, malaríulyf og stinningarlyf. Þau voru að andvirði um 36 milljóna dollara.

Upp komu 1.235 mál, sem eru til rannsóknar hjá viðkomandi lögregluyfirvöldum, meira en 19.000 auglýsingar á ólöglegum lyfjum voru fjarlægðar og rúmlega 10.600 vefsíðum var lokað.

Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu um málið, segir í frétt Tollstjórans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert