Ísland krúnudjásnið í jafnréttismálum

Rannveig Rist tekur við Hvatningarverðlaunum jafnréttismála af Ragnheiði Elínu Árnadóttur …
Rannveig Rist tekur við Hvatningarverðlaunum jafnréttismála af Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Morgunblaðið/Þórður

„Það er siðferðislega rétt að ráða fjölbreytt starfsfólk en það er líka bara fjári góð viðskiptaákvörðun,“ segir Gena Lovett, jafnréttisstýra hjá höfuðstöðvum Alcoa í New York. Lovett hefur klifið upp metorðastigann innan fyrirtækisins á síðustu árum og oft verið útnefnd sem ein þeirra kvenna sem „vert er að fylgjast með“ í viðskiptum.

Lovett talaði á ráðstefnu um stöðu og þróun jafnréttis á vinnumarkaði undir yfirskriftinni  „Aukið jafnrétti - Aukin hagsæld sem UN Women á Íslandi, Festa og Samtök atvinnulífsins efndu til á Hilton Reykjavík Nordica í morgun. Þar var fjallað um mikilvægi þess að fyrirtæki setji jafnréttismál á oddinn út frá viðskiptalegum forsendum og samfélagsábyrgð.

Á ráðstefnunni undirritaði Stjórn­ar­ráð Íslands yf­ir­lýs­ingu um að fylgja Jafn­rétt­is­sátt­mála stofn­un­ar Sam­einuðu þjóðanna um kynja­jafn­rétti og vald­efl­ingu kvenna (UN Women). Er þetta í fyrsta sinn sem öll ráðuneyti eins rík­is und­ir­rita þenn­an sátt­mála í sam­ein­ingu

Fjölbreytni fyrir árangur

Lovett er með stjórnendur hverra eininga innan Alcoa samstæðunnar í stuttri ól þegar að jafnréttismálum kemur og þarf hver framkvæmdastjóri á reglulegum fundum að tilkynna henni um árangur sinn í jafnréttismálum. Með þessu segir hún tryggt að jafnréttisáætlun Alcoa verði fylgt.

Hún segir að jafnréttisstefnu þurfi að flétta í innviði fyrirtækja og að nauðsynlegt sé að allir séu samstíga og vinni með jafnrétti að leiðarljósi. „Stríðið um hæfileikaríkt starfsfólk er oft óvægið. Stjórnendur verða að ná í það allra besta og það verður að leita á öllum stöðum. Við þurfum fjölbreytni til þess að viðhalda samkeppnisstöðu okkar og starfsumhverfið þarf að endurspegla fjölbreytni samfélagsins,“ segir hún.

„Við þurftum að setja okkur markmið um að setja konur í leiðtogahlutverk innan fyrirtækisins. Þetta gerum við bæði vegna þess að konur eru alveg jafn hæfar til þess og karlmenn en einnig vegna þess að mikilvægt er að skapa sterkar fyrirmyndir jafnt fyrir konur sem karla.“

Nauðsynlegt að huga að frá upphafi

Hún segir hæfileikaríkt starfsfólk verða til með þjálfun og kennslu og nauðsynlegt sé því frá upphafi að taka inn jafn margar konur og karlmenn. Ef af fimm nýjum starfsmönnum er einungis ein kona er strax í upphafi búið að takmarka möguleikann á því að kona verði valin til frekari ábyrgðar innan fyrirtækisins þar sem fleiri karlmenn geta setið eftir þegar farið er að kemba í gegnum hópinn. Þá segir hún segir áframhaldandi stuðning vera nauðsynlegan. „Það er ekki nóg að vera boðið á dansleik heldur þarf þér einnig að vera boðið upp í dans þegar þangað er komið.“

Ísland er krúnudjásnið

Starfstöð Alcoa á Íslandi er krúnudjásn fyrirtækisins í jafnréttismálum að sögn Lovett. „Við vissum frá upphafi að við vildum sérstaklega ná til kvenna og fá þær til fyrirtækisins.“

Á ráðstefnunni heiðraði Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra Rio Tinto Alcan á Íslandi með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála. „Þetta fyrirtæki hefur með markvissum hætti stuðlað að jafnrétti í starfsemi sinni um árabil. Stjórnendur fyrirtækisins hafa með eftirtektarverðum hætti breytt menningu fyrirtækisins svo bæði kynin eiga þar nú jafna möguleika til starfsframa og þar er stuðlað að launajafnrétti.“ segir í áliti frá dómnefndinni.

„Árangur fyrirtækisins er sérstaklega eftirtektarverður þar sem starfssvið þess var um áratugaskeið álitið starfsvettvangur þar sem einungis karlar ættu heima. Forstjóri fyrirtækisins hefur, ásamt stjórnendateymi sínu, stuðlað að aukinni vitund í samfélaginu um kynjajafnrétti og sýnt að aukið jafnrétti stuðlar að aukinni hagsæld,“ segir í áliti frá dómnefnd.“

Gena Lovett, jafnréttisstýra hjá Alcoa.
Gena Lovett, jafnréttisstýra hjá Alcoa. Alcoa
Rio Tinto Alcan á Íslandi voru afhent Hvatningarverðlaun jafnréttismála á …
Rio Tinto Alcan á Íslandi voru afhent Hvatningarverðlaun jafnréttismála á ráðstefnunni. Morgunblaðið/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert