Furðuspeglar og legó-forritun

Nemendur í stjörnufræði í Dalvíkurskóla í morgun skoðuðu sólina í …
Nemendur í stjörnufræði í Dalvíkurskóla í morgun skoðuðu sólina í blíðviðrinu undirileiðsögn Sævars Helga Bragasonar.

Háskólalest Háskóla Íslands býður til veglegar vísindaveislu í menningarhúsinu Bergi á Dalvík milli kl. 12 og 16 á morgun, laugardaginn 31. maí. Veislan er ætluð öllum aldurshópum og er aðgangur gestum að kostnaðarlausu. 

Í tilkynningu segir að Háskólalestin bruni nú um landið í fjórða sinn með fjölbreytta dagskrá fyrir alla aldurshópa. Í ferðum lestarinnar er lögð er áhersla á lifandi og litríka vísindamiðlun þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi

Háskólalestin kom til Dalvíkur í gær og í dag, föstudag, sóttu nemendur í efstu bekkjum Dalvíkurskóla, Árskógaskóla og Þelamerkurskóla námskeið í Háskóla unga fólksins. Þar stóð valið á milli efnafræði, eðlisfræði, japönsku, stjörnufræði, næringarfræði, hugmyndasögu, Legó-forritunar, jarðfræði og vísindaheimspeki.

Sem fyrr segir verður vísindaveisla í Bergi kl. 12 til 16 á morgun og þangað er öllum heimamönnum boðið. Þar verða meðal annars magnaðar sýnitilraunir, japanskir búningar og skrautskrift, leikir og þrautir, ýmis tæki og tól, furðuspeglar, mælingar og alls kyns óvæntar uppgötvanir. Opið verður í Byggðasafninu milli kl. 14 og 17 og ókeypis aðgangur, fyrirtæki í heimabyggð kynna starfsemi sína og heilmargt annað verður í boði fyrir gesti og gangandi.

Sprengjugengið landsfræga er með í för og sýnir kl. 12.30 og 14.30 og sýningar verða í hinu sívinsæla stjörnutjaldi á 30 mínútna fresti. Tjaldið verður staðsett í Grunnskóla Dalvíkur.

Dagskrá Háskólalestarinnar er öllum opin, aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Hægt er að fylgjast með Háskólalestinni á vef hennar og á Facebook

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert