Ók á 187 km hraða

Mynd úr safni
Mynd úr safni

Lögreglan á Hvolsvelli var við umferðareftirlit í umdæmi sínu, sem nær frá Þjórsá og að Gígjukvísl austan við Klaustur, í gær. 

Stöðvaði hún sjö ökumenn vegna of hraðs aksturs. Bifhjól var 
stöðvað austan Hvolsvallar á 187 km/klst hraða og sex ökumenn hafa verið stöðvaðir fyrir að aka of hratt á milli Vík og Kirkjubæjarklausturs, sá hraðasti ók á 134 km/klst hraða. Ökumaður bifhjólsins var sviptur ökuleyfinu til bráðabrigða á lögreglustöðinni á Hvolsvelli, að því er fram kemur á Facebook síðu lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert