Tekið við hinsegin flóttamönnum

Frá Hinsegin dögum.
Frá Hinsegin dögum.

Ísland mun taka við fimm hinsegin flóttamönnum frá Simbabve, Úganda og Kamerún og sex manna fjölskyldu frá Afganistan. Ein kona er í hópi flóttafólksins en hinir fjórir eru karlmenn. Öll eiga þau sameiginlegt að hafa flúið heimaland sitt vegna ofsókna sem þau hafa sætt vegna kynhneigðar sinnar.

Félags- og húsnæðismálaráðherra og utanríkisráðherra samþykkt tillögu flóttamannanefndar um móttöku flóttamannanna í dag. Móttökusveitarfélög flóttafólksins eru Reykjavíkurborg og Hafnarfjarðarbær.

Frá þessu greinir Velferðarráðuneytið.

Tillaga flóttamannanefndar um móttöku fólksins byggist á samþykkt ríkisstjórnarinnar frá 10. september sl. þar sem ákveðið var að taka annars vegar á móti hinsegin fólki og hins vegar konum í hættu frá Afganistan, alls tíu til fjórtán einstaklingum.

Flóttamannanefnd skoðaði umsóknir flóttafólks sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lét nefndinni í té. Reykjavíkurborg verður móttökusveitarfélag hinsegin flóttafólksins og hefur því átt aðkomu að málinu með flóttamannanefnd.

Hafnarfjarðarbær verður móttökusveitarfélag afgönsku fjölskyldunnar sem er ekkja með fimm börn. Tillaga flóttamannanefndar um að bjóða konunni með börnum sínum til Íslands er í samræmi við áherslur Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um móttöku fólks sem fellur undir viðmið stofnunarinnar um konur í hættu.

Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna verður nú tilkynnt að íslensk stjórnvöld séu tilbúin til að taka á móti þeim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert