Sæbraut lokað vegna listaverks

Sæbraut verður lokuð frá Snorrabraut að Lækjargötu frá kl. 17.30-18.00 í dag vegna flutnings á lokaverki Listahátíðar 2014.

Verkið Flugrákir eftir Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur verður flutt af tveimur listflugvélum yfir Kollafirði og kórnum Kötlu en söng hans verður útvarpað beint í Víðsjá á Rás 1. Flutningur verksins hefst kl. 17.45 og stendur yfir í um 10 mínútur, segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert