Bjarni gagnrýnir bandarísk yfirvöld

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Benediktsson. mbl.is/Ómar

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að eitthvað sé verulega bogið við umræðu varðandi hugsanlegar viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga á sama tíma og fréttir berist af því hvernig yfirvöldum sé að sé að mistakast af taka fólk af lífi sem hefur hlotið dauðadóma í bandarísku réttarkerfi.

Þetta segir Bjarni á Facebooksíðu sinni.

Bjarni fjallar um það þegar sagt frá því í síðustu viku að Íslendingum hefði ekki verið boðið á hafráðstefnuna Our Ocean sem Bandaríkjamenn standi fyrir vegna hvalveiða.

„Ekkert liggur svo sem fyrir um þetta en það má vel vera að þarna sé tenging á milli. Hvað sem því líður var fyrsta langreyður ársins veidd í þessari viku,“ skrifar Bjarni.

Hann segir að það sé til fyrirmyndar af utanríkisráðuneytinu að beita sér fyrir umræðu um málefni hafsins, t.a.m. um sjálfbærni veiða, en Bjarni segir ekkert land standa Íslandi framar í þeim málaflokki. 

„Hafi hvalveiðar haft áhrif á aðkomu Íslands að ráðstefnunni væri ráð fyrir Bandaríkjamenn að læra af íslenskri reynslu og ekki síður að líta sér nær. Af mörgu mætti hér nefna að nýlega hafa áform þeirra um neðansjávarsprengingar í tilraunaskyni verið harðlega gagnrýndar, m.a. vegna alvarlegra áhrifa á hvali og önnur sjávarspendýr (sjá t.d. http://www.wildcalifornia.org/wp-content/uploads/2014/04/NWTT-DEIS-comments.pdf),“ skrifar Bjarni.

„Að lokum er eitthvað verulega bogið við alla umræðu varðandi hugsanlegar viðskiptaþvinganir Bandaríkjamanna vegna hvalveiða Íslendinga á sama tíma og fréttir berast af því hvernig þeim er að mistakast að aflífa fólk eftir dauðadóma í eigin réttarkerfi. Hvor er hér með ,,the moral high ground" eins og þeir myndu orða það? Hvor hefur tilefni til að draga úr samskiptum við hinn?  http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/04/30/aftakan_mistokst_en_fanginn_lest/,“ segir hann ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert