Flutningaskip kyrrsett vegna skulda

Frá Reyðarfirði.
Frá Reyðarfirði. mbl.is/Golli

Sýslumaðurinn á Eskifirði kyrrsetti erlent flutningaskip í höfninni í Reyðarfirði á miðvikudag vegna skulda þýsks eiganda skipsins. Um 7.000 tonn af áli frá Alcoa Fjarðaáli eru um borð í skipinu. 

Skipið, sem heitir UTA og siglir undir fána Antígva og Barbúda, var kyrrsett skömmu áður en það átti að leggja úr höfn sl. miðvikudag og sigla til Rotterdam í Hollandi. Þýska útgerðin Intersail rekur skipið yfir hönd eigandans. Tólf eru í áhöfn skipsins.

Hollenska félagið Cargow BV leigir skipið fyrir flutningana, en umboðsaðili fyrir Cargow hér á landi er fyrirtækið Thorship.  

Karl Harðarson, framkvæmdastjóri Thorship, segir í samtali við mbl.is að skipið hafi verið kyrrsett vegna skulda eigandans.

„Það var vegna skulda á olíu frá því snemma á síðasta ári, sem er áður en skipið kemur inn í leigusamning við hollenska félagið sem er með þessa þjónustu fyrir Alcoa. Hvorki Alcoa né hollenska félagið eru aðilar að málunum með nokkrum hætti. Við erum eingöngu þolendur,“ segir Karl.

Spurður út í farminn segir Karl að hann hafi ekki verið kyrrsettur. „Farmurinn er okkur aðgengilegur og við erum eingöngu að skoða lausnir á málinu og munum ákveða það í lok dagsins í dag hvað við gerum – hvort við munum losa skipið eða bíða lengur ef lausn er í sjónmáli milli þeirra aðila sem eru með málið á sínu borði,“ segir Karl.

„Farmurinn um borð í skipinu er í kringum sjö þúsund tonn. Þetta er fyrst og fremst ál og tengdar vörur,“ segir Karl. Hann segir ljóst að afhendingu farmsins muni seinka eitthvað en það verði hins vegar ekki alvarleg seinkun.

Í lögum um kyrrsetningu segir að kyrrsetja megi eignir skuldara „til tryggingar fullnustu lögvarinnar kröfu um greiðslu peninga ef henni verður ekki þegar fullnægt með aðför og sennilegt má telja, ef kyrrsetning fer ekki fram, að draga muni mjög úr líkindum til að fullnusta hennar takist eða að fullnusta verði verulega örðugri“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert