Hvalvertíðin þykir hafa farið mjög vel af stað

Langreyður dregin á land í Hvalfirði.
Langreyður dregin á land í Hvalfirði. mbl.is/Árni Sæberg

Von var á Hval 9 til Hvalfjarðar um miðnætti í gær með tvær langreyðar sem veiddust í fyrrinótt. Þar með voru komnar 13 langreyðar á land eftir vikulanga hvalvertíð.

„Þetta er mjög gott,“ sagði Gunnlaugur F. Gunnlaugsson, stöðvarstjóri í Hvalstöðinni, um veiðarnar það sem af er. Hvalur 8 var á miðunum um miðjan dag í gær í leit að hval. Gunnlaugur sagði að hvalirnir hefðu til þessa verið mjög góðir miðlungshvalir.

Ekki hefur viðrað vel til hvalveiða undanfarið og skyggni verið lélegt á hvalamiðunum. Allt byggist á því á hvalveiðum að skyggni sé gott svo sjáist til hvalanna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert