Segir sæstrenginn ekki ganga upp

Dr. Baldur Elíasson segir hugmyndir um raforkusölu ekki ganga upp, …
Dr. Baldur Elíasson segir hugmyndir um raforkusölu ekki ganga upp, of mörg ljón séu í veginum. mbl.is/Eggert

Baldur Elíasson, fyrrverandi yfirmaður orku- og umhverfismála hjá sænsk-svissneska orkurisanum ABB, segir að hugmyndir um að selja raforku úr landi í gegnum sæstreng gangi ekki upp.

Þar þurfi bæði að horfa til þess að strengurinn yrði sá lengsti sem lagður hefði verið, og að hann myndi verða á miklu dýpi. Kostnaðurinn gæti því hlaupið á milljörðum Bandaríkjadala. Verð á raforku sé lágt í Evrópu og væri því erfitt að ná upp í kostnað.

Auk þess þurfi að hafa í huga að líklega muni Íslendingar þurfa orkuna sjálfir þegar fram í sæki. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segir Baldur því, að ekki séu forsendur til þess að selja raforkuna úr landi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert