Vill að málinu verði skipt upp

Lárus Welding (t.v.) ásamt verjanda sínum, Óttari Pálssyni (fyrir miðju).
Lárus Welding (t.v.) ásamt verjanda sínum, Óttari Pálssyni (fyrir miðju). mbl.is/Þórður

Verjandi Lárusar Welding óskaði eftir því við fyrirtöku Stím-málsins svokallaða í dag að því yrði skipt upp þannig að mál ákæruvaldsins á hendur Lárusi verði rekið í einu lagi. Jafnframt gerði verjandi kröfu um málinu yrði frestað. Þessu mótmælti ákæruvaldið.

Sakborningar voru ekki viðstaddir fyrirtökuna í dag, en í mál­inu eru þeir Lár­us Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóra Glitn­is, Jó­hann­es Bald­urs­son, þá fram­kvæmda­stjóri markaðsviðskipta Glitn­is, og Þor­vald­ur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Saga Capital eru ákærðir.

Óttar Pálsson, verjandi Lárusar, sagði að það væri íþyngjandi fyrir Lárus að hafa þurfa að sæta ítrekuðum ásökunum embættis sérstaks saksóknar og hann ætti rétt á því að mál gegn honum væri rekið í einu lagi. Óttar tók fram að þetta sé þriðja málið sem Lárus sé ákærður fyrir en í hinum tveimur hafi hann verið sýknaður.

Óttar óskaði jafnframt eftir því að sérstakur saksóknari gefi út yfirlit er varða stöðu mála embættisins er varða Lárus. Óttar benti á að í bréfi sem barst honum í janúar 2013 frá sérstökum saksóknara hefði komið fram að rannsóknum allra mála á hendur Lárusi hefði átt að ljúka í september 2013. Því óskaði hann eftir uppfærðu yfirliti nú.  Hólmsteinn Gauti Sigurðsson saksóknari sagði að embættið myndi verða við þeirri kröfu fljótlega.

Símon Sigvaldason héraðsdómari sagði við fyrirtökuna að tilgangur hennar í dag hefði verið að fara yfir stöðu málsins og átta sig á umfangi þeirra gagna sem stæði til að leggja fyrir dóminn. Í kjölfar kröfunnar um að málinu yrði skipt upp óskaði Óttar eftir því að fá að rekja málið fyrir dómnum. Það verður svo í höndum dómara að ákveða hvort hann verði við kröfunni eður ei.

Næsta fyrirtaka í málinu verður 9. september nk.

Lárus og Jóhannes eru ákærðir fyr­ir umboðssvik, með því að hafa mis­notað aðstöðu sína til lán­veit­inga og stefnt fjár­mun­um bank­ans í veru­lega hættu, en Þor­vald­ur Lúðvík fyr­ir hlut­deild í brot­inu.

Við síðustu fyrirtöku málsins þann 28. apríl sl. neitaði Jó­hann­es Bald­urs­son sök.

Eign­ar­halds­fé­lagið Stím var stofnað vet­ur­inn 2007 og var Glitn­ir stærsti hlut­hafi þess. Stím keypti hluta­bréf í Glitni og FL Group fyr­ir tæp­lega 25 millj­arða króna í nóv­em­ber 2007 af Glitni. Kaup­in voru að stór­um hluta fjár­mögnuð með láni frá Glitni upp á tæpa 20 millj­arða með veði í ein­ung­is hluta­bréf­un­um sjálf­um.

Upp­hæð láns­ins var hærri en áhættu­nefnd bank­ans mátti af­greiða án samþykk­is stjórn­ar en lán­veit­ing­in var þó ekki bor­in upp fyr­ir stjórn­ina líkt og skylt var að gera.

Eng­inn markaður var fyr­ir bréf­in á þeim tíma sem Stím greiddi fyr­ir þau og er talið að viðskipt­in hafi verið til þess gerð að halda uppi virði hluta­bréfa í Glitni og FL Group.

Stím-málið hef­ur verið til rann­sókn­ar hjá embætti sér­staks sak­sókn­ara frá ár­inu 2009 og er á meðal þeirra elstu mála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert