Fyrr í sumar fengum við að heyra sögu Kristrúnar Bender, 11 ára stelpu sem fékk eitlakrabbamein á síðasta ári og var á tímabili hætt komin. Baráttan hefur gengið vel og nú er hún að fara að taka þátt í Landsmóti hestamanna á mánudag. Við kíktum á hana í Mosfellsdalinn þar sem hún undirbýr sig.
Hún segir að það sé svolítið stressandi að vera að taka þátt í mótinu þar sem hún keppir ásamt 80 öðrum krökkum í gæðingakeppni barna. Hins vegar sé ekkert annað að gera en að vona það besta, nú hafi hún náð markmiðum sínum og því sé lítið annað að gera en að hafa gaman af.
Á milli þess sem hún æfir sig fyrir mótið aðstoðar hún Önnu Báru Ólafsdóttur í reiðskólanum á Vindhóli þar sem hún kennir krökkum réttu handtökin í hestamennskunni en hún segir að sér líði vel og hlakkar til að taka þátt í Landsmótinu sem hefst einmitt á mánudag.