Munu mæla dauðatíma hvala

Hvalstöðin
Hvalstöðin Rax / Ragnar Axelsson

Í sumar mun norskur dýralæknir koma til landsins en hann mun fara í veiðiferðir með hvalveiðiskipum og mæla dauðatíma hvala, bæði hrefnu og langreyða. Hann mun verða við störf í sex til átta vikur. Niðurstöðurnar verða ekki gerðar opinberar en kynntar í nefnd Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins (NAMMCO) og bornar saman við niðurstöður sambærilegra mælinga annarra aðildarríkja ráðsins.

Þetta kemur fram í skriflegu svari Sigurðar Inga Jóhannssonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, við fyrirspurn frá Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna, um eftirlit með veiðum á hrefnu og langreyði.

Í svari ráðherrans kemur fram að eftirlit með hvalveiðum fari fyrst og fremst fram með skoðun á skipum og veiðibúnaði, veiðiaðferðum, mælingaraðferðum, sýnatöku og því hvort veiðarnar séu stundaðar á leyfilegum svæðum. Auk þess sé gengið úr skugga um að um borð séu menn með tilskilda reynslu og leyfi.

„Þegar útgerð veiðir hval ber að senda tilkynningu um það til Fiskistofu þar sem fram kemur veiðistaðsetning, kyn og lengd dýrs. Þeim upplýsingum er safnað og þær vistaðar á Fiskistofu. Upplýsingar um heildarfjölda veiddra dýra eru birtar í ársskýrslu Fiskistofu,“ segir í svarinu og einnig að skýrslur vegna eftirlitsferða Fiskistofu verði ekki gerðar opinberar.

Þá segir að kostnaður vegna eftirlitsins muni ráðast af umfangi þess en það sé greitt af útgerðum hvalveiðiskipa. Leyfisgjald vegna hvalveiða mun hins vegar verða að hluta nýtt til að kosta aðkomu norsks dýralæknis vegna mælinga á dauðatíma hvala.

Þá er þess getið að í ráðuneytinu sé verið er að „gaumgæfa“ hvernig leggja megi á veiðigjöld vegna veiða á hval.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert