Miklir vatnavextir eru nú í Tungudal og Hnífsdal og búast má við áframhaldandi úrkomu og verulegu afrennsli víða á Vestfjörðum á föstudag og laugardag. Einnig er hætt við skriðuföllum á Vestfjörðum og á Tröllaskaga.
Spáð er verulegri úrkomu um mestallt landið á laugardag og einnig á mánudag og má því búast við áframhaldandi vatnavöxtum.
Veðurstofan hvetur ferðafólk til að gæta ýtrustu varúðar þegar ekið er yfir varhugaverð vöð á hálendinu.