Krefst ómerkingar vegna ættartengsla

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson Þórður Arnar Þórðarson

Ríkissaksóknari hefur áfrýjað dómi í Aurum-málinu svonefnda til Hæstaréttar. Þess verður krafist að dómurinn verði ómerktur og sendur aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar. Telur ríkissaksóknari að einn þriggja dómara í héraðsdómi hafi verið vanhæfur vegna ættartengsla sinna. Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.

At­hafnamaður­inn Jón Ásgeir Jó­hann­es­son, Lár­us Weld­ing, Magnús Arn­ar Arn­gríms­son og Bjarni Jó­hann­es­son voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykja­vík­ur í Aur­um-mál­inu en sérstakur sak­sókn­ari fór fram á sex ára fang­elsi yfir Lár­usi og fjög­urra ára fang­elsi yfir þeim Jóni Ásgeiri, Magnúsi Arn­ari og Bjarna. Magnús Arn­ar gegndi starfi fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tækja­sviðs Glitn­is og Bjarni var viðskipta­stjóri sama banka. 

Ákæra sér­staks sak­sókn­ara snýst um fé­lagið Aur­um Hold­ings Lim­ited sem áður hét Goldsmiths, Mapp­in & Wepp og WOS. Í mál­inu voru ákærðir þeir Lár­us, Jón Ásgeir, sem var einn aðal­eig­andi bank­ans, Magnús Arn­ar og Bjarni fyr­ir umboðssvik eða hlut­deild í umboðssvik­um vegna sex millj­arða króna lán­veit­ing­ar Glitn­is banka til fé­lags­ins FS38 í júlí 2008. Lánið var veitt til að fjár­magna að fullu kaup FS38 ehf. á 25,7% hlut Fons hf. í Aur­um Hold­ings Lim­ited.

Hefði gert athugasemdir

Eftir að dómurinn var kveðinn upp var upplýst um að Sverrir Ólafsson, einn dómara í málinu, er bróðir Ólafs Ólafssonar, sem jafnan er kenndur við Samskip. Ólafur hlaut dóm í Al-Thani-málinu svonefnda sem sérstakur saksóknari sótti.

Ólaf­ur Þór Hauks­son, sér­stak­ur sak­sókn­ari, sagði í kjölfarið að hann hefði gert at­huga­semd­ir hefði hann vitað að Sverr­ir, sem var sér­fróður meðdómsmaður, væri bróðir at­hafna­manns­ins Ólafs.

Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja málinu til Hæstaréttar og samkvæmt heimildum Ríkisútvarpsins mun hann bera fyrir sig þá málsástæðu að Sverrir hafi verið vanhæfur til starfans vegna ættartengsla. Vegna þessa eigi að ómerkja dóminn og vísa honum aftur heim í hérað til löglegrar meðferðar og þá með öðrum sérfróðum meðdómara. Til vara mun ríkissaksóknari krefjast þess að allir sakborningar verði sakfelldir.

Sigríður Friðjónsdóttir
Sigríður Friðjónsdóttir Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert