Borgarstjóri afhjúpaði Fjöðrina

Dagur B. Eggertsson og Sara Riel við Fjöðrina í dag.
Dagur B. Eggertsson og Sara Riel við Fjöðrina í dag. Styrmir Kári

Margir voru viðstaddir er veggmyndin Fjöðrin eftir Söru Riel, við Asparfell 2-12 í Breiðholti, var afhjúpuð í dag. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, afhjúpaði myndina.

Veggmyndin við  Asparfell er hluti af verkefninu „Vegglist í Breiðholti“ en í því felst að skreyta Breiðholti með ýmsum hætti. Alls verða fimm veggmyndir eftir fjóra listamenn komnar í Breiðholtið á næstu mánuðum og átta veggmyndir eftir ungmenni á aldrinum 17-20 ára.

Fjöðrin önnur veggmyndin sem er afhjúpuð í Breiðholti en síðasta haust var veggmynd eftir Theresu Himmer afhjúpuð á Jórufelli 2-12. 

Jafnframt verða tvö verk eftir Erró verða sett upp í Breiðholti á næstunni, annars vegar á íþrótta­húsið við Aust­ur­berg og  hins vegar við Álfta­hóla 4-6. Fjórði listamaðurinn hefur verið valinn til að gera veggmynd í efra Breiðholtið og verður nafn hans tilkynnt í næstu viku, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Átta ungmenni voru jafnframt valin í sumar til að gera veggmyndir í Breiðholti undir handleiðslu listamanna og birtast þau í hverfinu á næstu vikum.

Listasafn Reykjavíkur hefur haft umsjón með verkefninu en það er unnið í samráði við íbúa í Breiðholti og hverfisráð. 

Margir voru samankomnir við Asparfellið í dag.
Margir voru samankomnir við Asparfellið í dag. Styrmir Kári
Styrmir Kári
Styrmir Kári
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert