Íbúar loki gluggum vegna mengunar

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur beinir því til borgarbúa í nágrenni við Skeifuna að loka vel gluggum vegna reykmengunar sem berst frá eldinum í Skeifunni í kvöld, 6. júlí 2014. Nokkrar byggingar hafa brunnið en Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins telur sig hafa náð tökum á eldinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stórt svæði hefur verið rýmt um­hverf­is fata­hreins­un­ina Fönn í Skeif­unni. Mikinn reyk leggur þaðan og vill Heilbrigðiseftirlitið því ráðleggja íbúum í nágrenninu að loka gluggum og kynda vel þær íbúiðr þar sem reykur hefur borist inn. Heilbrigðisfulltrúar eru á staðnum og meta aðstæður ásamt Slökkviliðinu, segir enn fremur.

Grét­ar Þor­steins­son tók mynd­skeiðið sem fylg­ir frétt­inni.

mbl.is/Þórður
mbl.is/Þórður
mbl.is/Þórður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert