„Ég kem líklega til með að hlaupa lengra á hverjum degi upp úr þessu þar sem ég missti út dag,“ segir tékkneski ofurhlauparinn René Kujan en í dag er tuttugasti hlaupadagur hans um endilangt Ísland. Hann hefur hlaupið alla daga, að frátöldum einum þar sem Kujan var veðurtepptur.
„Í dag hefur veðrið verið mjög gott, sólin skín og ég hef næstum ekki orðið var við vind,“ sagði René Kujan, en hann taldi sig vera um 25 kílómetra frá Flókalundi þegar mbl.is náði tali af honum klukkan 14:50 í gærdag. Hann var því tæplega hálfnaður með markmið dagsins, þar sem hann lagði af stað frá Mjóafirði um morguninn.
René hyggst klára hlaup sitt á þriðjudaginn eða miðvikudaginn, en þar sem veðrið varnaði honum vegar einn dag gæti það kostað fleiri skref á minni tíma. „Ég kem líklega til með að hlaupa lengra á hverjum degi uppúr þessu úr því að ég missti dag út.“ René hleypur meira en heilt maraþon daglega á stóru hlaupum sínum.
Aðspurður um leyndarmál sín og orkulind fyrir hlaupin var Kujan ekki lengi að hugsa sig um. „Ég fæ orkuna í hlaupin frá harðfiski, súkkulaði, hreinu íslensku vatni og skyri, auðvitað,“ svaraði Kujan léttur í bragði.
Þetta er sjöunda skiptið sem Kujan kemur til Íslands og að hans sögn ekki hið síðasta. „Ég vil gera eitthvað sérstakt og fyrir mér er Ísland mjög sérstakt. Ég elska þetta land.“
Þótt hann hyggist snúa aftur til Íslands telur Kujan að hann ráðist ekki aftur í verkefni af þessari stærðargráðu á landinu. „Ég mun líklega koma aftur og aftur til að hlaupa en ég held að þetta sé síðasta stóra hlaupið mitt hérna. Ég held ég komi kannski á næsta ári og hlaupi Laugarveginn.“
Ekki sé léttur leikur að stunda hlaup á Íslandi. „Það er áskorun að hlaupa á Íslandi því landið er svo hrjúft, en mér líkar ekki auðvelda hluti. Reyndar getur þetta líka verið mjög gott land til að hlaupa á, þegar veðrið er betra, því hitastigið verður ekki of hátt og smá gola getur kælt mann á hlaupinu. Þegar vindurinn blæs ekki of fast held ég að þetta sé fullkomið land fyrir hlaup.“
Auk þess að vera hlaupari nýtur Kujan ýmissar hreyfingar í frístundum sínum. „Mér finnst gott að hreyfa mig svo ég kann vel við ýmsar útiíþróttir einsog fjallahjól, fjallgöngur, skíði, hjólaskauta, sund og allt þar sem hreyfing kemur við sögu.“ Auk þessa tók Kujan fram að hann nyti þess að eiga samveru með fjölskyldu og vinum þegar hann væri ekki að hlaupa.