Líðan vélhjólamanns óbreytt

Landspítali
Landspítali mbl.is/Lára Halla

Líðan vélhjólamanns sem slasaðist alvarlega skammt frá Akranesi laugardaginn 28. júní sl. er óbreytt en honum hefur verið haldið sofandi í öndunarvél frá slysinu. 

Að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi er líðan fallhlífastökkvara, sem slasaðist skammt frá Hellu á Rangárvöllum, þennan sama dag óbreytt. Hann er alvarlega slasaður en er ekki lengur í öndunarvél.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert