Ragnarök vann sinn fyrsta leik

Ragnarök, ferðalið Roller Derby Ísland, ferðaðist til Finnlands síðastliðna helgi til að keppa í fyrsta skipti. Það er skemmst frá því að segja að liðið vann sinn fyrsta leik, gegn Kotham City Rollers 230-170 í bænum Hamina. Síðari leiknum í ferðinni tapaði reyndar liðið, gegn B-liði Lathi Roller Derby - Lihamukiloijat 172-254.

Næst á dagskrá hjá Roller Derby Ísland eru þrír hjólaskautaviðburðir í sumar í samvinnu við Reykjavíkurborg og nýliðanámskeið í ágúst. Liðið mun svo taka á móti franska liðinu Roller Derby Lorient í október og þar með keppa sinn þriðja leik.

Fylgjast má með Roller Derby Ísland á rollerderby.is og á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert