Rannsókn á eldsupptökum hafin

Margmenni var í Skeifunni að fylgjast með eldinum.
Margmenni var í Skeifunni að fylgjast með eldinum. Styrmir Kári

Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hóf í dag rannsókn á eldsupptökum í húsnæði Skeifunnar 11. 

Að sögn Jóhanns Karls Þórissonar aðstoðaryfirlögregluþjóns er ráðgert að rannsókn standi yfir næstu daga og vikur, en þá mun tæknideildin skila niðurstöðum til lögreglunnar til frekari skoðunar. Jóhann Karl vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert