Sala á bjór og léttvíni eykst

Sala áfengis jókst um 3,8% í lítrum fyrstu sex mánuði ársins í samanburði við árið í fyrra. Þegar vöruflokkar eru teknir saman sést að sala á bjór jókst um 4,4% og léttvíni um 2,1% en á sama tíma var samdráttur í sterku áfengi um 1,1%.

Þetta kemur fram á vefsvæði Vínbúðarinnar. Í einstaka vöruflokkum var sala á rauðvíni og hvítvini minni á fyrstu sex mánuðunum á meðan sala á lagerbjór jókst um 3,9%.

Sala júnímánaðar var 3,2% meiri í ár en í fyrra. Í einstaka vöruflokkum jókst sala á lagerbjór um 3,9% á meðan sala á rauðvíni, hvítvíni og ókrydduðu brennivíni og vodka er minni en á síðasta ári.

Fyrstu sex mánuði ársins jókst sala neftóbaks um tæp 36%. Sala vindlinga jókst um 6,5% og reyktóbaks um 6,1%. Sala vindla dróst aftur á móti saman um tæplega 1%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert