357 hlaupa Laugaveginn um helgina

Frá upphafi Laugavegshlaupsins í Landmannalaugum.
Frá upphafi Laugavegshlaupsins í Landmannalaugum. mbl.is

Á laugardag fer Laugavegshlaupið fram í 18. sinn. Frá upphafi hlaupið verið haldið af Reykjavíkurmaraþoni. Alls eru 357 hlauparar skráðir til keppni í ár 105 konur og 252 karlar. Aldrei hafa fleiri verið skráðir til þátttöku í Laugavegshlaupinu en nú. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Íslenskir þátttakendur eru 216 talsins og frá öðrum löndum 141. Fjölmennastir eru Bandaríkjamenn eða 29, þá Þjóðverjar sem eru 17 talsins og þriðja fjölmennasta þjóðin eru Kanadamenn sem eru 16 skráðir til þátttöku. Þátttakendur í hlaupinu eru af 29 mismunandi þjóðernum.

Hlaupið hefst í Landmannlaugum og lýkur í Húsadal í Þórsmörk. Eins og margir vita er Laugavegurinn ein fjölfarnasta og vinsælasta gönguleiðin um íslensk öræfi. Venjan er að ganga leiðina á fjórum dögum en met hlauptími á þessari 55 km leið í Laugavegshlaupi er 4 klukkustundir og 19 mínútur í karlaflokki og 5 klukkustundir í kvennaflokki.

Hlaupið hefst við skála Ferðafélags Íslands í Landmannalaugum, laugardaginn 12.júlí klukkan 9.00 og lýkur við skála Ferðafélagsins í Húsadal í Þórsmörk. Tímamörk eru í hlaupinu og þurfa hlauparar að vera komnir í Álftavatn (22 km) á innan við 4 klukkustundum og í Emstrur (34 km) á innan við 6 klukkustundum. Það er því aðeins fyrir vel æfða  hlaupara að taka þátt í þessari miklu þolraun.

Margir hlaupa á hverju ári

Hlauparar þurfa ekki aðeins að berjast við kílómetrana 55 og þá miklu hækkun sem er á leiðinni heldur einnig náttúruöflin. Búast má við öllu af íslenska sumarveðrinu sem hefur verið kalt í ár eins og flestir hafa tekið eftir. Vitað er að það er mikill snjór í Hrafntinnuskeri og nágrenni og að árnar sem fara þarf yfir geta verið vatnsmiklar eftir rigningu og leysingar síðustu daga.

Margir hlaupa Laugavegshlaupið ár eftir ár. Í 18 ára sögu hlaupsins hafa níu einstaklingar lokið 10 eða fleiri hlaupum og um 70 hafa lokið 5 eða fleiri hlaupum.

Frá Laugavegshlaupi.
Frá Laugavegshlaupi.
Lagt er upp í Laugavegshlaupið frá Landmannalaugum, áleiðis í Hrafntinnusker …
Lagt er upp í Laugavegshlaupið frá Landmannalaugum, áleiðis í Hrafntinnusker og áfram.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert