Bílvelta í Ljósavatnsskarði

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum skammt frá Sigríðarstöðum í Ljósavatnsskarði í Suður-Þingeyjarsýslu um fimmleytið í morgun. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri var bifreiðin að koma inn á nýlagt slitlag með mikilli lausamöl þegar slysið varð. Bifreiðin fór út af og valt en ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, meiddist ekki alvarlega. Farið var með konuna sem ók bílnum á sjúkrahús til skoðunar en bifreiðin, fólksbíll, var óökufær eftir slysið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert