Nýr samningur milli Íslands og Sviss

Af hálfu Íslands undirritaði Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins samninginn en …
Af hálfu Íslands undirritaði Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins samninginn en Fabrice Filliez fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins. Ljósmynd/utanríkisráðuneytið

Undirritaður hefur verið nýr samningur milli Íslands og Sviss til að komast hjá tvísköttun á tekjur og eignir. Af hálfu Íslands undirritaði Einar Gunnarsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins samninginn en Fabrice Filliez fyrir hönd svissneska fjármálaráðuneytisins.
Utanríkisráðuneytið segir að í nýjum samningi felist fyrst og fremst aðlögun að gildandi stefnu ríkjanna í tvísköttunarmálum og þeim breytingum sem orðið hafa á tvísköttunarfyrirmynd OECD frá því að núgildandi samningur var undirritaður 1988.
 
Einnig að aðrar breytingar í hinum nýja samningi séu fyrst og fremst þær að tekinn er upp afdráttarskattur á tilteknar tegundir þóknana sem ekki er að finna i eldri samningi. Í öðru lagi séu með samningnum tekin af öll tvímæli um að lífeyrissjóðir njóti ívilnana nýja samningsins. Í þriðja lagi að sett hafi verið inn ákvæði sem heimili skattlagningu eftirlauna í greiðsluríki.
 
Vonast er til að samningurinn geti komið til framkvæmda 1. janúar 2016. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert