Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögregla voru kölluð út í fjölbýlishús í Breiðholti skömmu fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi en tilkynnt hafði verið um reyk frá húsinu.
Í ljós kom að gleymst hafði að slökkva undir potti með eggjum á eldavél í einni íbúðinni. Töluverður reykur myndaðist en engar skemmdir urðu á húsnæði.