Landsmenn töpuðu og landsmenn borga

Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar.
Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar. mbl.is/ÞÖK

„Samráð þessara tveggja fyrirtækja um verðlagningu á byggingavörum hefur hækkað byggingarkostnað um milljarða króna, með tilheyrandi vísitöluhækkun á lánum heimila og fyrirtækja,“ segir Baldur Björnsson, framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar, um sátt Húsasmiðjunnar við Samkeppniseftirlitið.

Baldur segir að viðurkenning Húsasmiðjunnar á alvarlegum samkeppnislagabrotum og greiðsla 325 milljón króna sektar varpi ljósi á þau óhæfuverk sem Húsasmiðjan og Byko stunduðu gegn neytendum og Múrbúðinni.
 
„Í frétt Samkeppniseftirlitsins um sektargreiðslu Húsasmiðjunnar kemur fram að samráð hennar og Byko hafi einkum gengið út á að koma í veg fyrir að Múrbúðin næði fótfestu á markaði fyrir timbur og grófvöru. Meðal annars er upplýst að Húsasmiðjan viðurkennir að hafa beitt sér til að koma í veg fyrir að Múrbúðin fengi viðunandi viðskiptakjör hjá Steinullarverksmiðjunni. Húsasmiðjan og Byko áttu 50% í Steinullarverksmiðjunni. Á sínum tíma fullyrti forstjóri Steinullarverksmiðjunnar við Múrbúðina að þrýstingur eigenda hefði engin áhrif á viðskiptakjörin. Nú hefur hið gagnstæða verið staðfest. Það skýrir að sjálfsögðu hvers vegna Steinullarverksmiðjan var ófáanleg til að veita Múrbúðinni ásættanleg viðskiptakjör og kom þannig í veg fyrir verðlækkun á vörunni,“ segir Baldur í tilkynningu.
 
Þá segir einnig að lögbrot Húsasmiðjunnar hafi átt sér stað meðan fyrirtækið var í eigu Landsbankans og Framtakssjóðs og það sé Landsbankinn sem taki á sig greiðslu 325 milljón króna sektarinnar. „Með öðrum orðum, landsmenn töpuðu á samkeppnislagabrotum Húsasmiðjunnar og Byko og nú borga landsmenn sektina fyrir það sem aðaleigendur Landsbankans.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert