Leita vitna að líkamsárás

Lögreglan leitar vitna að líkamsárás.
Lögreglan leitar vitna að líkamsárás. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás við Grímsbæ á Bústaðavegi í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 6. júlí sl. á bilinu frá kl. 04-05, en þar var ráðist á karlmann á sextugsaldri. 

Sérstaklega er óskað eftir að ökumaður leigubíls, sem talinn er hafa átt þarna leið hjá, hafi samband við lögreglu. Eftir líkamsárásina var þolandinn fluttur af árásarmönnunum í bíl þeirra að Irish Pub við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og skilinn þar eftir.  

Þeir sem kunna að hafa orðið vitni að árásinni eða þegar árásarmennirnir skildu við þolandann í Hafnarfirði, eða geta veitt upplýsingar um málið að öðru leyti, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má enn fremur koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sjá fyrri fréttir mbl.is:

Líkamsárás á Bústaðavegi

Árásarmennirnir í gæsluvarðhaldi

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert