Andlát: Björn Jónasson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri

Björn Jónasson.
Björn Jónasson.

Björn Jónasson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Siglufjarðar, andaðist á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar á Siglufirði aðfaranótt 10. júlí, 69 ára að aldri.

Björn bjó á Siglufirði alla tíð fyrir utan síðasta árið þegar hann dvaldi á heimili dóttur sinnar í Garðabæ.

Björn fæddist 4. júní 1945 á Siglufirði og var sonur Hrefnu Hermannsdóttur húsmóður og Jónasar Bergsteins Björnssonar, skrifstofu- og vigtarmanns.

Björn lauk gagnfræðaprófi frá Reykholtsskóla í Borgarfirði 1963. Hann nam við Vimmerby Folkhögskola 1964 og verslunar- og skrifstofustörf við Verzlunarskóla Íslands 1965.

Björn starfaði að loknu námi hjá Verzlunarfélagi Siglufjarðar hf. og bæjarfógetaembættinu á Siglufirði. Hann hóf svo störf við Sparisjóð Siglufjarðar 1968 og starfaði þar samfleytt til ársins 2003. Björn var sparisjóðsstjóri frá 1979 til 2001. Hann starfaði síðan sem innheimtustjóri hjá RARIK frá 2005 til 2011.

Björn tók mikinn þátt í félagsstörfum. Hann var formaður Félags ungra sjálfstæðismanna á Siglufirði 1965-1980, í stjórn SUS 1976-1980, í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins 1989-1999, bæjarfulltrúi á Siglufirði og í ýmsum nefndum frá 1974-1998. Forseti bæjarstjórnar á Siglufirði 1987-1990, í stórn Sambands íslenskra sparisjóða 1986-2001. Björn var sænskur konsúll á Siglufirði frá 1982. Hann var einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Skjaldar á Siglufirði 1971 og gekk í Frímúrararegluna 1981. Þá var Björn í Karlakórnum Vísi frá 1966 og í stjórn kórsins frá 1970. Hann var einnig í kirkjukór Siglufjarðar frá 1984.

Fyrri kona Björns var Guðrún Margrét Ingimarsdóttir (1945-1976). Dóttir þeirra er Rakel, fædd 1965. Maður hennar er Thomas Josef Fleckenstein. Börn þeirra eru María Lísa, fædd 1998, og Björn, fæddur 2000. Seinni kona Björns var Ásdís Kjartansdóttir (1948-2013).

Útför Björns verður gerð frá Siglufjarðarkirkju 19. júlí kl. 14.00.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert