Börðu manninn með golfkylfum

-
- Sigurður Bogi Sævarsson

Ráðist var á mann á fertugsaldri í Rimahverfi um ellefuleytið í gærkvöldi. Maðurinn er með fjölmarga áverka en á annan tug ungra manna höfðu ráðist að honum og slegið hann með golfkylfum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var maðurinn með áverka víðsvegar um skrokkinn og blæddi í gegnum bol sem hann var í og einnig var hann með sprungna vör.

Drengirnir, sem allir voru farnir þegar lögregla kom á vettvang, höfðu einnig brotið rúðu í húsi sem maðurinn var við. Maðurinn var fluttur á slysadeild í lögreglubifreið.

Mynd úr safni
Mynd úr safni Ernir Eyjólfsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert