Flugvél af gerðinni Airbus A-380 frá British Airways, sem var á leiðinni frá London til Los Angeles, þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli rétt fyrir hádegi í dag eftir að farþegi veiktist á leiðinni. Vélin var stödd yfir Langjökli þegar samband var haft við flugvöllinn og því fyrirvarinn óvenjustuttur.
Sjúkraflutningamenn eru nú á staðnum og verður farþeganum ekið á spítala. Ekki er vitað um ástand hans.