Rúta vegur salt á veginum

Rútan vegur salt fram af vegkantinum en unnið er að …
Rútan vegur salt fram af vegkantinum en unnið er að því að ná henni á réttan kjöl. mbl.is/Golli

Vegurinn um Vatnsvík á Þingvöllum er nú lokaður tímabundið meðan unnið er að því að koma rútu á réttan kjöl. Bílstjórinn missti annað hjólið út fyrir vegkantinn þegar hann var að snúa og vegur rútan salt þvert yfir veginn.

Vegurinn er þröngur svo lokað er fyrir umferð vegna atviksins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi voru ekki farþegar í rútunni og ekkert tjón vegna óhappsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert