Met í ferðaþjónustunni falla hratta þessi misserin og í júní var enn eitt slegið. Þá var flogið áætlunarflug til fimmtíu og einnar borgar og auk þess var boðið upp á leiguflug til nokkurra staða. Samkvæmt talningum Túrista hafa áfangastaðirnir ekki áður verið jafnmargir.
Yfir veturinn er London sú borg sem langoftast er flogið til en á sumrin dregur aðeins úr flugi þangað og ferðunum til Kaupmannahafnar fjölgar. Vægi Oslóar dregst einnig saman yfir sumarið og borgin fer frá því að vera þriðji vinsælasti áfangastaðurinn og niður í fimmta sætið. Ástæðan er sú að ferðunum til höfuðborgar Frakklands fjölgar mjög á þeim tíma og í sumar fljúga til að mynda Icelandair, WOW air og Transavia þangað.
Íslandsflug Delta milli New York og Keflavíkur eykur svo hlutdeild bandarísku borgarinnar töluvert. Berlín kemst einnig á lista þeirra tíu áfangastaða sem oftast er flogið til en umferðin þangað eykst mikið þegar þýsku félögin Airberlin og German Wings veita WOW air samkeppni á þessari flugleið yfir aðalferðamannatímann.
Vægi vinsælustu áfangastaðanna í júní í brottförum talið: