Ferðamennirnir heilir á húfi

Frá Ísafirði.
Frá Ísafirði. mbl.is/Sigurður Bogi

Bandarísku ferðamennirnir, sem villtust á Hornströndum í dag, eru komnir heim á hótel, heilir á húfi að sögn lögreglunnar á Ísafirði.

Þeir höfðu samband við lögregluna í dag og báðu um aðstoð þar sem þeir voru villtir.
Þegar fyrstu fregnir bárust af málinu var það eina sem vitað var um staðsetningu ferðamannanna að þeir væru á Hornströndum.
Lögreglan taldi ekki ástæðu til að kalla út leitarflokka þar sem mennirnir voru vel búnir og veður gott á þeim slóðum þar sem þeir voru.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert