Gunnar fékk sér köku með rjóma

Gunnar Nelson í Hörpu fyrr á árinu.
Gunnar Nelson í Hörpu fyrr á árinu. mbl.is/Ómar Óskarsson

Bardagakappinn Gunnar Nelson verðlaunaði sig eftir frábært kvöld á laugardaginn, þegar hann sigraði Bandaríkjamanninn Zak Cummings í annarra lotu í Fight Night í UFC í Dyflinni. 

Jón Viðar Arnþórsson, formaður Mjölnis, birti meðfylgjandi mynd af Gunnari á Instagram í dag, þar sem hann situr á sveitakaffihúsi í Dyflinni með köku með rjóma.

Gunnar hefur löngum verið þekktur fyrir rólegt yfirbragð sitt og eins og segir í texta við myndina þá fór hann upp á hótelherbergi beint eftir bardagann. Margir hefðu vafalítið viljað fagna sigri sem þessum með öllu fjörugri hætti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert