Gönguskóm stolið á hálendinu

Ferðalangar eru misvel búnir til gönguferða á hálendi Íslands
Ferðalangar eru misvel búnir til gönguferða á hálendi Íslands Af vef Ferðafélags Íslands

Tveir þjófnaðir hafa átt sér stað á síðustu vikum í Hrafntinnuskeri þar sem vanbúnir erlendir ferðamenn hafa stolið gönguskóm annarra ferðalanga. Í báðum tilvikum voru lélegir og nánast ónýtir strigaskór skildir eftir. Þetta kemur fram í frétt á vef Ferðafélags Íslands. 

Í öðru tilvikinu náðust skóþjófarnir þegar þeir komu niður í Álftavatn en þar var búið að láta skálaverðina vita af þjófnaðinum. Þeir voru því á varðbergi og ráku augun í að vandaður skóbúnaður tveggja manna stakk í stúf við annars lélegan viðlegubúnað þeirra. Þegar betur var að gáð kom í ljós að skórnir voru rækilega merktir íslenskum eigendum sínum. Í hinu tilvikinu náðist ekki í skottið á þjófi sem hafði með sér gönguskó fararstjóra, segir í frétt ferðafélagsins.

Ekki áður tíðkast

Stefán Jökull Jakobsson, yfirskálavörður Ferðafélags Íslands, segir að hingað til hafi þjófnaðir ekki þekkst á Laugaveginum og það sé afar hvimleitt til þess að vita að fólk þurfi að byrja að varast slíkt.

Ferðalangar eru misvel búnir til gönguferða á hálendi Íslands og töluvert mikið hefur verið um vanbúna göngumenn á Laugaveginum í sumar. Í ljósi þess hvað sumarveðrið hefur verið blautlegt hingað til er enn meiri ástæða til að huga vel að öllum búnaði, vera í góðum gönguskóm og með vatnsheldar flíkur í bakpokanum.

Skóþjófnaður getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir þann sem fyrir þjófnaðinum verður, því ekki er hægt að halda göngunni áfram án þess að vera með skó, eins og ferðalangur á Mont Blanc komst að fyrr í sumar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert