Ólafur sendir samúðarkveðjur

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands. mbl.is/Golli

Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur sent samúðarkveðjur frá sér og íslensku þjóðinni til Willems-Alexanders konungs Hollands og Yangs di-Pertuan Agong konungs Malasíu. „Hin skelfilegu örlög vélar Malaysian Airlines, MH 17, hafi vakið sorg og samúð um allan heim. Hugur okkar og bænir eru hjá fjölskyldum þeirra sem létu lífið,“ segir í kveðju forsetans.

„Alþjóðasamfélagið þarf að bregðast við með nánu samstarfi og nauðsynlegum aðgerðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert