Sagan sögð af húsunum í Viðey

Magnús Sædal, fyrrum byggingarfulltrúi hjá Reykjavíkurborg, mun í kvöld fræða gesti Viðeyjar um endurbyggingu bæði Viðeyjarstofu og kirkju sem stóð yfir á árunum 1986–1988. Magnús var byggingarstjóri þeirrar endurbyggingar og þekkir sögu húsanna manna best.

Magnús mun fara yfir sögu húsanna en einnig fjalla um klaustrið sem áður stóð í Viðey og afdrif þess í siðaskiptunum.

Þá fá gestir Viðeyjar að heyra um Skúla Magnússon og byggingu Viðeyjarstofu og kirkjunnar og í leiðinni um þá sem bjuggu Viðeyjarstofu eftir tíð Skúla. Auk þess ætlar hann að segja frá gömlu steinhúsunum á Íslandi.

Gestir munu fylgja Magnúsi í vettvangsskoðun um húsin og fá þeir tækifæri til þess að spyrja hann spjörunum úr.

Magnús er byggingartæknifræðingur frá TÍ 1973, er jafnframt húsasmíðameistari. Hann starfaði fyrir Reykjavíkurborg frá 1974 til 2012, lengst af sem byggingarfulltrúi og getur því fjallað um þessa áhugaverðu endurbyggingu á bæði faglegan og áhugaverðan hátt. Flóknu verki sem þessu fylgja margar skemmtilegar sögur endar lumar Magnús á ófáum slíkum.

Gangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir. Sjá nánar á vefsvæði Viðeyjar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert