Drógu bílaleigubíl upp úr Hólmsá

Björgunarsveitin Stjarnan í Skaftártungu var kölluð út um kvöldmatarleytið í dag þegar ferðamenn festu bílaleigubíl sinn í Hólmsá á Fjallabaksleið syðri, sunnan við Skaftártungu. Símasamband var lélegt en ferðamennirnir náðu loks sambandi við lögreglu sem sendi út björgunarsveitina. 

Þegar björgunarsveitina bar að voru ferðamennirnir komnir á þurrt og gekk greiðlega að draga bílinn upp úr ánni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert