Nýir sýslumenn og lögreglustjórar

Anna Birna Þráinsdóttir sýslumaður í Vík í Mýrdal, standandi, og …
Anna Birna Þráinsdóttir sýslumaður í Vík í Mýrdal, standandi, og Guðrún Hildur Kolbeins. mbl.is/Jónas Erlendsson

Anna Birna Þráinsdóttir, sýslumaður í Vík í Mýrdal, verður sýslumaður á Suðurlandi, þegar ný lög um embætti sýslumanna og lögreglustjóra taka gildi, þann 1. janúar nk.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins verður Kjartan Þorkelsson, sýslumaður á Hvolsvelli, lögreglustjóri á Suðurlandi og verða höfuðstöðvar lögreglunnar á Hvolsvelli.

Þá mun ákveðið að Jónas Guðmundsson, sýslumaður í Bolungarvík, verði sýslumaður á Vestfjörðum. Búist er við því að skipunarbréf nýrra sýslumanna verði send úr innanríkisráðuneytinu fyrir vikulok, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert