Franski spítalinn opnaður á ný

Franska verkefnið er stórt í sniðum, felur í sér endurgerð …
Franska verkefnið er stórt í sniðum, felur í sér endurgerð á fimm húsum sem Frakkar reistu í kringum aldamótin 1900 á Fáskrúðsfirði.

Frönsku húsin á Fáskrúðsfirði verða formlega opnuð laugardaginn 26. júlí og lýkur þar með stærsta verkefni Minjaverndar utan höfuðborgarsvæðisins. Samhliða opnar sýning Fransmanna á Íslandi, þar sem lífi og starfi franskra sjómanna er gert skil með nýstárlegum og áhrifaríkum hætti, segir í fréttatilkynningu.

Franski spítalinn hefur verið tekinn aftur í notkun eftir meira en hálfrar aldar hlé, ásamt fjórum öðrum sögufrægum húsum sem Frakkar reistu á Fáskrúðsfirði um og upp úr aldamótunum 1900. Af því tilefni leiða Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri og Þröstur Ólafsson, stjórnarformaður Minjaverndar, einfalda opnunarathöfn sem fram fer við Franska spítalann, 26. júlí kl. 14:00 að viðstöddum Marc Bouteiller, sendiherra Frakklands á Íslandi, Berglindi Ásgeirsdóttur, sendiherra Íslands í Frakklandi, Lionel Tardy, formanni frönsk-íslensku samstarfsnefndar franska þjóðþingsins, Jean-Yves de Chaisemartin, borgartjóra í Paimpol, Michèle Kerckhof, varaborgarstjóra Gravelines og fleirum.

Auk þess sem frönsku húsin verða tekin formlega í notkun, verður safnasýningin Frakkar á Íslandsmiðum einnig opnuð formlega. Sýningin er í Læknahúsinu og undirgöngum sem tengja Læknishúsið við Franska spítalann og hefur hún vakið verðskuldaða athygli fyrir nýstárlega og áhrifaríka nálgun við viðfangsefnið.

Tileinkað frönskum sjómönnum

Aðalhönnuður sýningarinnar er Árni Páll Jóhannsson, leikmyndahönnuður. Haf minninganna, margmiðlunarverk í safninu sem tileinkað er frönskum sjómönnum sem fórust á Íslandsmiðum, hannaði Gagarín, en talið er að hátt í fimm þúsund manns hafi farist hér við land með um 400 frönskum skútum á árunum 1830 til 1930. Sýning er á vegum safnsins Fransmenn á Íslandi, sem er í eigu Fjarðabyggðar.

Endurgerð frönsku húsanna má rekja aftur til ársins 2009, en 19. september það ár undirrituðu Minjavernd, Fjarðabyggð, Alliance Française á Íslandi og Gravelines-borg viljayfirlýsingu um endurgerð Minjaverndar á Franska spítalanum. Áhugi á varðveislu húsanna hafði þá farið vaxandi um talsvert skeið. Nokkru síðar eða 31. maí 2011 undirritaði Minjavernd sams konar yfirlýsingu ásamt AF á Íslandi og Paimpol-borg.

Á þeim tæpu fimm árum sem liðin eru frá því að verkefninu var hrundið af stað, hefur Minjavernd endurbyggt fimm hús með arfleifð franskra sjómanna og samskipti við heimamenn sem leiðarstef. Þau eru Sjúkraskýlið, Litla kapellan, Líkhúsið, Læknishúsið og Franski spítalinn, Þessi sögufrægu hús hafa nú endurheimt sinn fyrri sess í bæjarmynd Fáskrúðsfjarðar, en í nýju hlutverki eða sem hótel, veitingastaður og safnahús Fransmanna á Íslandi. Litla kapellan er eina húsið sem gegnir upprunalegu hlutverki sínu sem guðshús, en blessun hennar fer fram fyrr um daginn. Aðalhönnuðir húsanna voru Argos ehf. Arkitektastofa Grétars og Stefáns.

Húsin eru í eigu Minjaverndar. Megináhersla var lögð á að varðveita upprunalegt útlit og afstöðu þeirra. Helsta undantekningin í þeim efnum er staðsetning Franska spítalans, sem stendur vestar en áður og neðan götu, gegnt Læknishúsinu. Einnig var áhersla lögð á að nýta sem kostur var upprunalegt byggingarefni og tókst að endurnýta um 25-30% af því.

Franski spítalinn.
Franski spítalinn.
Læknishúsið og franski spítalinn.
Læknishúsið og franski spítalinn.
Kapellan og sjúkraskýli.
Kapellan og sjúkraskýli.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert