Óska vitna að atviki við Hressó

Lítið er vitað um málsatvik í Austurstræti
Lítið er vitað um málsatvik í Austurstræti mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar á fésbókarsíðu sinni eftir vitnum að atviki sem átti sér stað þann 1. júní um klukkan 02:00 fyrir framan Hressingarskálann í Austurstræti. Kemur þar fram að ekki sé vitað annað um málsatvik en það að slasaður maður hafi yfirgefið vettvang með reiðhjól.

Lögreglan biður þá sem telja sig hafa upplýsingar um atvikið um að hringja í lögregluna í síma 444-1000. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Færsla á fésbókarsíðu LRH

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert