Ferðamenn hætt komnir

Krossá við Þórsmörk.
Krossá við Þórsmörk. Árni Sæberg

Á tíunda tímanum í morgun var tilkynnt um rútu sem sat föst í Steinsholtsá á Þórsmerkurleið. 15 farþegar voru í rútunni og var dautt á henni, farið að flæða inn auk þess sem áin gróf hratt undan henni. Björgunarsveitir frá Hellu, Hvolsvelli og Landeyjum voru kallaðar út auk þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Staðahaldari í Húsadal, Volcano Huts, var fyrstur á vettvang og tókst þeim að ná fólkinu úr rútunni og úr ánni rétt í þann mund er björgunarsveitir komu á staðinn um hálfri klukkustund eftir að aðstoðarbeiðni barst. Engin slys urðu á fólki.

Nokkuð mikið er í ám og lækjum á svæðinu þessa dagana og er ferðafólk hvatt til að gæta ýtrustu varúðar þegar þvera þarf straumvatn, segir í frétt Landsbjargar um málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert