Opna fyrir umferð í seinni hluta ágúst

Ráðist var í umtalsverðar framkvæmdir við Hverfisgötu á seinasta ári …
Ráðist var í umtalsverðar framkvæmdir við Hverfisgötu á seinasta ári en áfram er unnið að opnun kaflans frá Barónsstíg að Snorrabraut. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Opnað var fyrir umferð frá gatnamótum Hverfisgötu og Barónsstígs að Vitastíg í gær en áfram er unnið að opnun kaflans frá Barónsstíg að Snorrabraut.

Áætlað er að hleypt verði á umferð á þann hluta í seinni hluta ágústmánaðar og að frágangi ljúki í lok ágúst, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Ljóst er að framkvæmdir við Hverfisgötu hafa tafist um nokkrar vikur en upphaflega stóð til að verkinu, sem hófst í mars á þessu ári, yrði lokið í heild í lok júlí eða í byrjun ágúst.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert