Annie Mist nældi í silfrið

Annie Mist Þórisdóttir er næst hraustasta kona heims.
Annie Mist Þórisdóttir er næst hraustasta kona heims. Ómar Óskarsson

Annie Mist Þórisdóttir hafnaði í öðru sæti í einstaklingskeppni kvenna á heimsleikunum í Crossfit sem fóru fram í Los Angeles í Kaliforníu í Bandaríkjunum um helgina og er hún því næst hraustasta kona í heimi. 

Camille Leblanc-Bazinet sigraði í kvennaflokki og hlaut þar með titilinn hraustasta kona í heimi. Annie Mist hlaut titilinn árin 2011 og 2012 en tók ekki þátt í fyrra vegna meiðsla í baki. Rich Froning sigraði einstaklingsflokk karla. 

Lið CrossFitSport, Þuríður Erla Helga­dótt­ir, Fríða Dröfn Amm­endrup, Ing­unn Lúðvíks­dótt­ir, Davíð Björns­son, James William Gould­en og Daði Hrafn Svein­bjarn­ar­son, hafnaði í 34. sæti á mótinu. 

Hér má sjá lista yfir úrslit mótsins

Lið CrossFitSport hafnaði í 34. sæti
Lið CrossFitSport hafnaði í 34. sæti Af facebook-síðu liðs CrossFitSport
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert