Jeppi valt í Selvogi

Strandarkirkja.
Strandarkirkja. mbl.is/Ómar

Jeppabifreið valt út fyrir Suðurstrandaveg, skammt frá Strandarkirkju í Selvogi, snemma í morgun. Lögreglumenn eru komnir á staðinn en varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi sagðist í samtali við blaðamann engar upplýsingar geta gefið um málið að svo stöddu.

Frekari fréttir verða sagðar af málinu þegar þær berast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert