1,5 metra há gestabók

Frá Handverkshátíðinni.
Frá Handverkshátíðinni.

Undirbúningur 22. Handverkshátíðar í Eyjafjarðarsveit stendur sem hæst enda aðeins vika í hátíðina. Sýningin verður sett fimmtudaginn 7. ágúst og lýkur sunnudaginn 10. ágúst. Sýningin hefur fengið að gjöf 1,5 m háa gestabók klædda laxaroði.

Sýningin verður fjölbreytt líkt og undanfarin ár. 91 sýnandi af öllu landinu selja skart, fatnað, fylgihluti, textíl, keramik og gler og á útisvæðinu verður stórt tjald og skálar með ýmiskonar íslenskum matvælum, segir í fréttatilkynningu.

Félag ungra bænda á Norðurlandi býður upp á húsdýrasýningu auk annarra viðburða, Búsaga sýnir gamlar vélar og þjóðháttafélagið Handraðinn setur upp miðaldabúðir. Veitingasala, handverksmarkaður og lifandi tónlist verður alla dagana. Uppskeruhátíðin fer fram á laugardagskvöldinu. Matreiðslumenn Greifans sjá um grillveislu og meðal þeirra sem fram koma eru Pálmi Gunnarsson ásamt hljómsveit, Álftagerðisbræður og prestatríó skipað séra Hildi Eir, séra Oddi Bjarna og séra Hannesi Blandon kemur sérstaklega saman fyrir þetta kvöld og slær á létta strengi.

Allar nánari upplýsingar er að finna á www.handverkshatid.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert